...þar standa bankarnir í röðum, landbúnaðarútvegs....

14. september.

Heyrði í fréttunum í gær að bankarnir væru að bjóða bestu viðskiptavinunum í lúxusreisur. Ég fór strax að blaða gegnum  umslögin mín til að tékka hvort boðskort á Scala hefði farið fram hjá mér. Bankarnir sem um ræðir eru að mig minnir Kaupþing og Glitnir, en no way að ég muni hvaða bankar hafa runnið saman í allskonar nýja banka og svo enn nýrri banka með enn nýrri nöfnum. Veit bara að ég var vanskilapési í allskonar lánastofnunum og hef örugglega í ferlinu við að koma öllu í skil borgað íbúðaverð og rúmlega það í lögfræðistofur bankanna og skuldbreytingar lána. Það vantaði ekki að þeir væru tilbúnir að semja þessar elskur, en aldrei upp á neitt sem ég réð við.

Sem þýddi að hraðar en auga á festi fór allt í sama farið og enn var samið og skuldbreytt og borgaður kostnaður á kostnað ofan.  Nú er ég lífstíðareign bankanna og get trúlega aldrei framar um frjálst höfuð strokið. Þess vegna hélt ég kannski að ég væri í soltlu eftirlæti...

En andskotann að ég nenni að ergja mig á því núna. Ég á hvort sem er ekkert dress boðlegt á Scala. Ég á hins vegar fullt af frábærum óperudiskum sem ég get hlustað á í náttfötunum við kertjaljós og klæðin rauð - og reykt eins og mig bara lystir á meðan. Helv. reykingabannið er að gera mig að útlaga í þjóðfélaginu, glætan að ég setjist inn á kaffihús reyklaus eða hími úti í slagveðrinu með kaffibollann.

Ég hef þjáðst af óskilgreindu haustóyndi síðustu daga, eins og mér finnst þessi tími alltaf kósý. Það er í mér eitthvert eirðarleysi og löngun í forboðin ævintýr til að gleðjast yfir á elliheimilinu. Ég ætla að reyna að hrinda þeim í framkvæmd hið snarasta svo óyndið snúist ekki upp í eitthvað annað og verra.

Var að horfa á Bjarna Harðar og Róbert í Kastljósinu áðan og verð sífellt stoltari af mínum manni, Bjarna. Ef hann væri ekki í svona arfaglötuðum flokki myndi ég kjósa hann hvar sem væri í hvað sem væri. En nú ætla ég að greiða sjálfri mér atkvæði í sófann góða og horfa á vin minn Wallander, hinn sænska, og taka svo nokkrar aríur áður en ég fer að sofa.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband